Hálfu ári eftir innleiðingu samfélagsmiðlabanns barna yngri en 16 ára í Ástralíu er stór hluti þeirra enn á einhverjum samfélagsmiðlum. Ástralska ríkisstjórnin hefur tilkynnt að hún muni tvöfalda hámarkssekt fyrir brot á lögum landsins um lágmarksaldur á samfélagsmiðlum í 99 milljónir ástralskra dala. Það samsvarar um 9,1 milljarði íslenskra króna.
Podcast Hlaðvarp TV Sjónvarp Radio Útvarp
Innlent Erlent Veður Hádegisfréttir Kvöldfréttir ESB-viðræður Stjórnmál Lögreglumál Dómsmál Almyrkvi Andlát Flug Kompás Senda fréttaskot
Innlent Erlent Atvinnulíf Neytendur Seðlabankinn Kauphöllin Vistaskipti Veitingastaðir Fjármálin með Birni Berg Framúrskarandi fyrirtæki Samstarf Flug Fasteignamarkaður Ferðaþjónusta
Staðan í deildum HM 2026 í fótbolta Enski boltinn Fótbolti Besta karla Besta kvenna Bónus karla Bónus kvenna Olís karla Olís kvenna Körfubolti Handbolti NFL Íslenski boltinn Meistaradeildin Golf
Tarot dagsins Gagnrýni Menning Samkvæmislífið Bíó og sjónvarp Ísland í dag Tónlist Hvað veistu um...? Áskorun Uppskriftir Heilsa Eurovision Samhengið með Sif Samstarf Leikjavísir Hús og heimili Fréttatían Krakkatían Kynlíf Tíska og hönnun
Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB Kjörnir fulltrúar Halldór Um skoðanagreinar á Vísi
Erlent
Grípa á til frekari ráðstafana til að reyna að framfylgja banninu betur. Vísir/Getty
Hálfu ári eftir innleiðingu samfélagsmiðlabanns barna yngri en 16 ára í Ástralíu er stór hluti þeirra enn á einhverjum samfélagsmiðlum. Ástralska ríkisstjórnin hefur tilkynnt að hún muni tvöfalda hámarkssekt fyrir brot á lögum landsins um lágmarksaldur á samfélagsmiðlum í 99 milljónir ástralskra dala. Það samsvarar um 9,1 milljarði íslenskra króna.
Börnum yngri en 16 ára hefur verið meinaður aðgangur að tíu helstu samfélagsmiðlunum í Ástralíu síðan 10. desember 2025, en það er almennt viðurkennt að mörg þeirra geti enn nálgast og notað bönnuðu smáforritin.
Hafa lokað yfir hálfri milljón samfélagsmiðlaaðganga - Vísir
Hafa lokað yfir hálfri milljón samfélagsmiðlaaðganga - Vísir
Samfélagsmiðlarisinn Meta, sem á meðal annars Facebook og Instagram, hefur á fyrstu dögunum eftir gildistöku nýrra laga í Ástralíu látið loka um 550 þúsund aðgöngum notenda sem eru yngri en 16 ára. Í desember riðu Ástralar fyrstir þjóða á vaðið og settu lög sem fela í sér bann við samfélagsmiðlanotkun barna.
visir.isvisir.is/Elín Margrét Böðvarsdóttir/Dec 1
Í umfjöllun BBC s egir að Ástralir ætli því að uppfæra löggjöf sína og samkvæmt því geti netöryggisstofnun þeirra geta krafið samfélagsmiðlafyrirtæki um sönnunargögn fyrir því hvaða ráðstafanir þau hafi gripið til til að framfylgja banninu. Í fréttinni segir að fimm miðlar, og meint brot þeirra, séu til rannsóknar í dag. Það eru Facebook, Instagram, Snapchat, TikTok og YouTube.
Í frétt BBC segir að þó svo að bannið hafi verið tilkynnt með fyrirvara og látum hafi yfirvöldum reynst erfitt að framfylgja því. Í febrúar heimsótti BBC skóla í Sydney þar sem meirihluti nemenda sem notuðu samfélagsmiðla fyrir bannið sögðust enn hafa aðgang.
Vill sjá reglur um samfélagsmiðla sem fyrst - Vísir
Vill sjá reglur um samfélagsmiðla sem fyrst - Vísir
Bretar ætla að banna börnum yngri en sextán ára að nota samfélagsmiðla. Sviðstjóri Netvís vill að sambærilegar reglur verði settar hér á landi sem fyrst.
visir.isvisir.is/Lillý Valgerður Pétursdóttir
Þá er í fréttinni vísað í skýrslu netöryggisnefndar, sem er óháð eftirlitsstofnun þjóðarinnar, um að sjö af hverjum tíu börnum undir 16 ára aldri sem voru með reikning á samfélagsmiðlum fyrir bannið hefðu enn „einhvern aðgang“.
Í yfirlýsingu sinni á laugardag viðurkenndi ríkisstjórnin sumar þessara áskorana og sagði að harðari viðurlög væru sönnun þess að hún væri að „herða róðurinn gegn miðlum sem gera ekki nóg“. Aukin eftirlitsvöld netöryggisstofnunarinnar ættu að styðja við „skilvirkari rannsóknir og hugsanlegar aðgerðir“.
Anthony Albanese, forsætisráðherra Ástralíu, sagði í yfirlýsingu í gær að breytt umræða í bæði Ástralíu og alþjóðlega vekti hjá honum von en að ljóst væri að stóru samfélagsmiðlafyrirtækin væru ekki að gera nóg til að framfylgja lögunum.
„Það eru enn of mörg börn á samfélagsmiðlum.“
Frá því að Ástralía tilkynnti um og innleiddi sitt bann hafa fleiri lönd gefið út að þau muni fylgja í kjölfarið. Til dæmis Bretland en í júní á þessu ári tilkynnti Keir Starmer, fráfarandi forsætisráðherra Bretlands, að hann myndi setja á svipað bann fyrir börn yngri en 16 ára, með áformum um að það tæki gildi vorið 2027.
Ekki hefur enn verið gefinn út tæmandi listi yfir þá miðla sem verða fyrir áhrifum, en ríkisstjórnin sagði að bannið myndi ná yfir þá miðla „sem hafa þann tilgang að gera félagsleg samskipti möguleg og leyfa notendum að birta efni“. Þá sagði í yfirlýsingu stjórnvalda að þau væru að skoða hvort innleiða ætti bann að næturlagi og aðgerðir til að stöðva endalausa skrunun fyrir þá sem eru yngri en 18 ára sem hluta af löggjöfinni.
Kennarar óttast framkvæmd símafrís - Vísir
Kennarar óttast framkvæmd símafrís - Vísir
Grunnskólanemendur í Reykjavík mega hvorki nota farsíma né sambærileg snjalltæki á skólatíma næsta haust eftir að borgarstjórn samþykkti að taka upp símafrí í skólunum. Foreldrar fagna þessu en kennarar hafa áhyggjur af framkvæmdinni.
visir.isvisir.is/Lillý Valgerður Pétursdóttir
Á Íslandi hefur ekki verið tilkynnt um samfélagsmiðlabann en bæði ríkisstjórn og borgarstjórn í Reykjavík hafa tilkynnt um símabann í grunnskólum frá og með haustinu. Forysta Kennarasambands Íslands hefur gagnrýnt það og sagst hafa áhyggjur af innleiðingu bannsins. Þá segja þau önnur mál meira aðkallandi en símabann innan skólakerfisins. Foreldrar hafa á sama tíma fagnað banninu.
Símanotkun barna Börn og uppeldi Ástralía Bretland Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Borgarstjórn
Innlent
Innlent
Innlent
Innlent
Innlent
Erlent
Erlent
Innlent
Innlent
Innlent
×
Innlent
Innlent
Innlent
Innlent
Innlent
Erlent
Erlent
Innlent
Innlent
Innlent
Twitter Widget Iframe